Verkefnastofa borgarlínu hefur skipað hönnunarteymi fyrir fyrstu tvo áfanga borgarlínu sem mun vinna frumdrög að fyrstu framkvæmdum. Vinna er þegar hafin og er gert ráð fyrir að tillögur verði tilbúnar í vor.
Um er að ræða tvær framkvæmdalotur sem alls munu verða um 13 kílómetrar, annars vegar Hamraborg — Hlemmur og hins vegar Ártún — Hlemmur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá verkefnastofu borgarlínu.
„Það er einkar ánægjulegt að ná þessu hönnunarteymi saman, allt úrvals fólk og tilbúið í verkefnið. Þegar afraksturinn liggur fyrir í vor þá mun fólks átta sig betur á hvernig Borgarlínan mun hafa jákvæðar breytingar á borgarumhverfið með bættum aðstæðum fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi. Jafnframt mun á þeim tíma liggja fyrir tillaga að leiðarkerfi, greining á vagnakostum m.t.t. loftslagsmála, greining á rekstarkostnaði og mat á hagrænum sem samfélagslegum þáttum,“ segir Hrafnkell Ásólfur Proppé, verkefnastjóri borgarlínu.