Ók inn í snjóflóð í Ljósavatnsskarði

mbl.is/Þorgeir

Ökumaður bifreiðar ók inn í snjóflóð sem féll þvert á veginn í Ljósavatnsskarði við Ljósavatn rétt fyrir klukkan níu í kvöld. Búið að loka veginum frá Krossi að Grenivíkurafleggjara og gert er ráð fyrir að vegurinn verði lokaður í nótt og munu liðsmenn björgunarsveita verða við lokunarpósta í nótt.

Hvorki ökumanninum né farþegum bifreiðarinnar varð meint af.

Upplýsingar liggja ekki fyrir hversu stórt snjóflóðið var. Ökumaðurinn ók inn í flóðið að austanverðu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er líklegt að fólkið hafi ekki séð flóðið sögum slæms skyggnis og lélegrar færðar.

Vegir eru víða lokaðir á Norðurlandi vegna færðar en hvass vindur og ofankoma er norðan- og austantil. Þá er gul viðvör­un í gildi á Strönd­um og Norður­landi, Aust­ur­landi, Suðaust­ur­landi og Miðhá­lendi.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert