Lést í árekstri fólksbíls og snjóruðningstækis

mbl.is

Karlmaður á fimmtugsaldri lést í hörðum árekstri fólksbíls og snjóruðningstækis á Reykjanesbraut, á móts við álverið í Straumsvík, í gærkvöldi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 21.22, en bílarnir komu hvor úr sinni áttinni. Sá sem lést ók fólksbílnum, en ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka slysið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert