Leiðtogar ríkisstjórnarinnar fljúga á Flateyri

Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa farið margar ferðir úr höfuðborginni á Flateyri …
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa farið margar ferðir úr höfuðborginni á Flateyri undanfarinn einn og hálfan sólarhring. Mynd frá undirbúningi einnar slíkrar á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi. mbl.is/Eggert

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fljúga á Flateyri í dag til þess að kynna sér aðstæður og ræða við íbúa á staðnum eftir snjóflóðin tvö sem þar féllu á þriðjudagskvöld.

Gert er ráð fyrir að þyrlan fari í loftið kl. 13:30 úr Reykjavík og að ráðherrarnir verði komnir vestur um klukkustund síðar.

Ef enn verður ófært um Flateyrarveg þegar þau koma vestur munu ráðherrarnir millilenda á Ísafirði og taka Guðmund Gunnarsson bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar með sér yfir í Önundarfjörð, samkvæmt Tinnu Ólafsdóttur upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert