Tvö lík fundust á Sólheimasandi

Flugvélarflakið hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna undanfarið.
Flugvélarflakið hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna undanfarið.

Laust fyrir klukkan 12 fékk lögreglan á Suðurlandi tilkynningu um að lík konu hafi fundist á Sólheimasandi, skammt frá göngustíg að flugvélarflaki þar.

Lögreglumenn fóru þegar á vettvang og í framhaldi af skoðun þeirra á vettvangi var kölluð björgunarsveit til frekari leitar. 

Um kl. 14 fannst lík karlmanns skammt frá þeim stað sem konan lá. Dánarorsök liggur ekki fyrir og verður ekki ljós fyrr en að lokinni krufningu á líkunum, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Vísbendingar eru um að um sé að ræða par sem var að ferðast saman og hefur sendiráð viðkomandi ríkis verið upplýst um stöðuna. Bíll sem talinn er í leigu parsins er á bílastæði við Sólheimasand og vitað er að hann fór um Hvolsvöll á austurleið kl. 14:55 þann 13. janúar.

Tæknideildar- og rannsóknarlögreglumenn eru við vinnu á vettvangi og er ekki að vænta upplýsinga af hálfu lögreglunnar að sinni.

mbl.is/​Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert