Matvælastofnun varar við neyslu á fæðubótarefninu Íslenskar þaratöflur frá Gula miðanum vegna þess að í ráðlögðum dagskammti (einni töflu) er of mikið magn af joði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.
„Samkvæmt upplýsingum á umbúðum vörunnar á hún að innihalda 220 μg af joði í ráðlögðum daglegum neysluskammti sem er ein tafla á dag. Töflurnar hafa verið efnamældar og kom í ljós að magn joðs er 800 μg í hverri töflu. Efri öryggismörk joðs samkvæmt Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) eru 600 μg á dag,“ kemur fram í tilkynningunni.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þá verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.
Fyrirtækið Heilsa hefur innkallað vöruna af markaði, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Innköllunin á við allar lotur og allar framleiðsludagsetningar: