Læknar og lyfjaframleiðendur semja um siðareglur

Frá undirritun uppfærðs samnings í Hörpu. Frá vinstri: Ólafur Stephensen …
Frá undirritun uppfærðs samnings í Hörpu. Frá vinstri: Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA, Jakob Falur Garðarsson framkvæmdastjóri Frumtaka, Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands, og Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ. Ljósmynd/Læknablaðið

Formaður Læknafélags Íslands og framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka lyfjaframleiðenda á Íslandi, skrifuðu undir samning um samskipti lækna og fyrirtækja sem framleiða og flytja inn lyf við setningu Læknadaga 2020 í Hörpu í gær.

Samkvæmt tilkynningu byggja siðareglurnar á nýuppfærðum reglum Evrópusamtaka frumlyfjaframleiðenda. Þar segir jafnframt að samskipti lækna og lyfjafyrirtækja séu mikilvægur þáttur í betri lyfjameðferð við sjúkdómum og fræðslu lækna um meðferð lyfja.

„Um leið og samskipti heilbrigðisstarfsfólks og lyfjafyrirtækja eru mjög mikilvæg eru þau um leið vandmeðfarin. Þess vegna er mikilvægt að til grundvallar samskiptunum liggi skýrar siðareglur. Í þessum efnum hafa lyfjaframleiðendur verið í forystu og gengið hvað lengst í setningu slíkra reglna, og í raun til fyrirmyndar fyrir aðrar atvinnugreinar,“ segir Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka.

„Góð samskipti og heilbrigt samstarf hafa einkennt farsælt samstarf lækna við lyfjafyrirtæki um rannsóknir og fræðslu. Óvíða eru framfarir og breytingar örari en einmitt á sviði lækninga og lyfjaþróunar og traust samvinna er forsenda þess að hér standist heilbrigðiskerfið áfram samanburð við það sem best gerist í heiminum. Trygg umgjörð þar sem tekinn er af vafi um mörk í þessum samskiptum eru lóð á vogarskál bættrar þjónustu heilbrigðisstarfsfólks við sjúklinga,“ segir Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert