Annar jarðskjálfti, sem mældist 3,7 stig, varð klukkan 15:14 og átti upptök um 5 km norðnorðaustur af Grindavík. Fyrr í dag varð jafnstór skjálfti á þessu svæði. Fleiri minni skjálftar hafa orðið á þessum slóðum í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni fundust stærstu skjálftarnir á Reykjanesi, höfuðborgarsvæðinu og norður í Borgarnes. Um 20 eftirskjálftar hafa mælst á svæðinu, þar af nokkrir yfir þremur stigum. Tveir til þrír skjálftar, af þessari stærð mælast árlega á Reykjanesskaganum, að sögn Veðurstofunnar.