Þriggja bíla árekstur í Ártúnsbrekku

Ártúnsbrekka. Mynd úr safni.
Ártúnsbrekka. Mynd úr safni. mbl.is/Golli

Þrír ökumenn voru fluttir til skoðunar á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur í Ártúnsbrekkunni skömmu fyrir klukkan níu í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eru áverkar ökumannanna minni háttar. 

Óhappið varð í á vesturleiðinni og voru smávægilegar umferðartafir vegna þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert