Óheimilt að fjarlægja númerslausa bifreið af einkalóð

Í skýringum stjórnvaldanna var vísað til dæma um þá erfiðleika …
Í skýringum stjórnvaldanna var vísað til dæma um þá erfiðleika sem heilbrigðiseftirlitið gæti átt með að finna eigendur númerslausra bíla, einkum á almannafæri. mbl.is/Golli

Umboðsmaður Alþingis hefur úrskurðað að ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja um að fjarlægja númerslausa bifreið af einkalóð, sem og úrskurður úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála, hafi ekki verið í samræmi við lög.

Í áliti umboðsmanns segir að gengið sé út frá því að heilbrigðisyfirvöld, sem hafi heimildir til að fjarlægja lausamuni eins og númerslausar bifreiðar á almannafæri, geri slíkt að undangenginni viðvörun. Slíkar heimildir leysi stjórnvöld þó ekki undan því að fylgja reglum stjórnsýsluréttar við meðferð slíkra mála og taka mið af aðstæðum hverju sinni þannig að meðalhófs sé gætt.

Í umræddu máli hafði Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja látið fjarlægja númerslausa bifreið af einkalóð í kjölfar þess að tilkynning var límd á rúðu bílsins. Eigandinn kvaðst ekki hafa vitað af þessum fyrirætlunum og tilkynnti lögreglu að bílnum hefði verið stolið þegar í ljós kom að hann var horfinn úr stæði fyrir utan heimili hans.

Í skýringum stjórnvaldanna var vísað til dæma um þá erfiðleika sem heilbrigðiseftirlitið gæti átt með að finna eigendur númerslausra bíla, einkum á almannafæri. Umboðsmaður fékk ekki séð að þær skýringar ættu við.

Óumdeilt væri að bifreiðin hefði staðið á bílastæði inni á einkalóð fyrir framan tvíbýlishús sem eigandinn hefði búið í. Heilbrigðiseftirlitinu hefði verið í lófa lagið að kanna a.m.k. hjá eigendum fasteignarinnar hvort vitað væri hver ætti bifreiðina. Meðal annars í þeim tilgangi að geta tekið upplýsta ákvörðun um hvort tilefni væri til að draga hana í burtu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert