Viðskiptaþing í beinni útsendingu

Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands fer í dag fram í Hörpu í …
Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands fer í dag fram í Hörpu í fyrsta sinn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands fer fram í Silfurbergi Hörpu í dag og hefst dagskráin kl. 13. Hér að neðan er hægt að fylgjast með upphafi fundarins í beinni útsendingu, en þá munu Katrín Olga Jóhannesdóttir formaður Viðskiptaráðs og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpa gesti.

Viðskiptaþing 2020 mun fjalla um það „hvernig viðskiptalífið ber hitann og þungann af því að knýja fram nýsköpun og framfarir í umhverfismálum, m.a. í gegnum grænar fjárfestingar og endurhugsun á allri virðiskeðjunni,“ samkvæmt því sem segir á vef Viðskiptaráðs.

Dagskrá Viðskiptaþings 2020

13:00 Dagskrá byrjar

  • Ávarp formanns - Katrín Olga Jóhannesdóttir formaður Viðskiptaráðs
  • Ávarp forsætisráðherra - Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
  • Charting a Green Path for Iceland – Klemens Hjartar, McKinsey & Co.
  • Úr gráu yfir í grænt – Andri Guðmundsson
  • Mikilvægi nýrra mælikvarða á árangur fyrirtækja - Hrefna Ö. Sigfinnsdóttir

14:35 Hlé

  • The Sustainable 2020s: The Best of Times, The Worst of Times - Roelfien Kuijpers, DWS
  • A Brave New World – Sasja Beslik, Bank J. Safra Sarasin Ltd.

16:00 Skál yfir léttum veitingum

Fundarstjóri er Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert