Sameining sveitarfélaga á Austurlandi staðfest

Frá Seyðisfirði.
Frá Seyðisfirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra staðfesti í dag sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar í eitt sveitarfélag. Með sameiningunni verður til eitt stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli, með tæplega fimm þúsund íbúa.

Íbúar sveitarfélaganna samþykktu sameininguna með afgerandi hætti 26. október.

Boðað verður til sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 18. apríl þar sem kosið verður í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við stjórn sveitarfélagsins 15 dögum síðar eða 3. maí og á sama tíma tekur sameiningin gildi.

Framundan er atkvæðagreiðsla um nýtt nafn hins sameinaða sveitarfélags en nafnanefnd auglýsti eftir hugmyndum og bárust 112 tillögur með 67 hugmyndum að nýjum nöfnum. Nokkrar tillögur verða lagðar fyrir kjósendur í atkvæðagreiðslu sem fer fram samhliða sveitarstjórnarkosningum 18. apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert