Hellisheiði og þrengsli lokuð

Hellisheiði og Þrengsli eru lokuð.
Hellisheiði og Þrengsli eru lokuð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hellisheiði og veginum um Þrengslin var lokað á níunda tímanum í kvöld. Versnandi veður er nú í öllum landshlutum og ekkert ferðaveður. Veginum undir Eyjafjöllum að Vík var lokað fyrr í dag vegna veðurs. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.  

Þungfært, skafrenningur, hálka og éljagangur er á flestum leiðum. Appelsínugul viðvörun er í gildi vegna veðurs á Suður- og Suðausturlandi, gul viðvörun er í gildi á landinu fyrir utan höfuðborgarsvæðið og á Vesturlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert