Jóhanna Fjóla skipuð forstjóri

Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir.
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til næstu fimm ára.

Ákvörðun ráðherra er tekin að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana.

Jóhanna Fjóla  hefur gengt embætti forstjóra stofnunarinnar um skeið og starfað hjá stofnuninni frá því að hún var sett á fót. Hún hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar og rekstrar og starfað sem verkefnastjóri þróunar- og gæðamála. Á árunum 2000 – 2009 var Jóhanna Fjóla verkefnastjóri hjúkrunar en fyrir þann tíma starfaði hún við Sjúkrahúsið á Akranesi þar sem hún var meðal annars hjúkrunarforstjóri um eins árs skeið, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert