Ræddi stöðu mannréttindamála í Sádi-Arabíu

Frá fundi utanríkisráðherra Íslands og Sádi-Arabíu í Genf í dag.
Frá fundi utanríkisráðherra Íslands og Sádi-Arabíu í Genf í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, skoraði á utanríkisráðherra Sádi-Arabíu að láta baráttufólk fyrir mannréttindum tafarlaust úr haldi, á fundi þeirra í Genf í dag. Guðlaugur Þór tekur þátt í 43. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sem hófst í dag. Hann átti einnig fundi með fulltrúum Sameinuðu þjóðanna og annarra ríkja.

Þetta er í fjórða sinn sem Guðlaugur Þór tekur þátt í ráðherralotu ráðsins en hann var fyrsti íslenski ráðherrann til þess. Um eitt hundrað leiðtogar og ráðherrar eru viðstaddir fundi ráðsins í vikunni.

Guðlaugur átti einnig fundi með fulltrúum Sameinuðu þjóðanna og annarra ríkja. Á fundi með Faisal Bin Farhan Alsaud, utanríkisráðherra Sádi-Arabíu, ræddi hann sérstaklega stöðu mannréttindamála þar í landi. „Ísland leiddi gagnrýni 36 ríkja á sádiarabísk stjórnvöld fyrir um ári síðan, sem vakti athygli víða um heim. Mér fannst mikilvægt að fá tækifæri til að halda þeim sjónarmiðum á lofti með beinum hætti enda er mikilvægt að geta rætt málin jafnvel þótt mikið beri á milli,“ sagði Guðlaugur Þór að fundi loknum. „Ég hvatti ráðherrann til að halda áfram úrbótum á stöðu kvenna í ríkinu og sleppa umsvifalaust baráttufólki fyrir mannréttindum sem situr í fangelsi.“

Guðlaugur Þór Þórðarson og Filippo Grandi, framkvæmdastjóri UNHCR.
Guðlaugur Þór Þórðarson og Filippo Grandi, framkvæmdastjóri UNHCR. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Síðdegis undirrituðu utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherrar og Filippo Grandi, framkvæmdastjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), samkomulag um áframhaldandi kjarnaframlög Íslands til stofnunarinnar. Samkomulagið gildir út árið 2023 og felur í sér samtals tvær milljónir Bandaríkjadala eða 255 milljónir króna í kjarnaframlag á fjögurra ára tímabili. Framlög til einstakra verkefna koma til viðbótar við kjarnaframlag og undanfarin fimm ár hefur Ísland lagt stofnuninni til 648 milljónir króna í heildina. UNHCR vinnur að velferð flóttamanna í 134 ríkjum en um þessar mundir hafa um 75 milljónir manna flúið heimili sín, flestir vegna átaka. UNHCR er einnig helsta samstarfsstofnun Íslands við móttöku kvótaflóttamanna sem voru 75 talsins árið 2019 og verða 85 á þessu ári. 

Þá opnaði Guðlaugur Þór sýningu íslenskra listamanna í húsakynnum Sameinuðu þjóðanna í Genf sem endurspeglar tengsl mannréttinda og listar. Sýningarstjóri er Ásthildur Jónsdóttir og auk hennar eiga verk á sýningunni þau Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Anna Líndal, Guðmundur Elías Knudsen, Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Kristín Gunnlaugsdóttir.

Guðlaugur Þór tók einnig þátt í fundi bandalags stuðningsríkja fjölþjóðasamvinnu þar sem fjallað var um mikilvægi mannúðarlaga og baráttuna gegn refsileysi. Utanríkisráðherrar Þýskalands og Frakklands stóðu fyrir fundinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert