Riðuveiki staðfest í Skagafirði

Þetta er fyrsta tilfelli riðuveiki sem greinist á árinu og …
Þetta er fyrsta tilfelli riðuveiki sem greinist á árinu og í fyrra greindist einnig eitt tilfelli. Mynd úr safni. mbl.is/RAX

Riðuveiki hefur verið staðfest á búi í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði. Riðan greindist í sýni úr kind frá bænum Grófargili í Varmahlíð en á bænum eru nú um 100 fjár. Síðast greindist riða á þessu svæði árið 2019 á bænum Álftagerði. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. 

Bóndinn hafði samband við Matvælastofnun þar sem kindin sýndi einkenni riðuveiki. Kindin var skoðuð, síðan aflífuð og sýni tekin og send á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum þar sem riðuveiki var staðfest.

Búið er í Húna- og Skagahólfi og í því hólfi hefur riðuveiki komið upp á tuttugu búum á undanförnum 20 árum. Þetta er í fyrsta skiptið sem riða greinist á bænum en árið 2016 greindist riða á bænum Brautarholti sem er næsti bær við Grófargil. Riðuveiki hefur komið upp á mörgum bæjum í Varmahlíð í gegnum tíðina og má því segja að um þekkt riðusvæði sé að ræða, að því er segir í tilkynningu frá stofnuninni. 

Þetta er fyrsta tilfelli riðuveiki sem greinist á árinu og í fyrra greindist einnig eitt tilfelli. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011-2014. „Riðan er því á undanhaldi en þetta sýnir að ekki má sofna á verðinum,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert