46 sýni rannsökuð hér og öll neikvæð

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson verkefnastjóri á upplýsingafundi um …
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson verkefnastjóri á upplýsingafundi um kórónuveiruna í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vaxandi líkur eru taldar á að veiran eigi eftir að greinast hér á landi en allra ráða er neytt til að hefta komu hennar. Daglega bætast við lönd sem tilkynna um tilfelli, þar á meðal nokkur grannríkja Íslands. Þetta kom fram á stöðufundi samhæfingarstöðvar almannavarna sem haldinn var í morgun þar sem farið var yfir horfur varðandi kórónuveiruna COVID-19. 

Sýkla og veirufræðideild Landspítalans hefur nú rannsakað 46 sýni, meðal annars úr einkennalausum einstaklingum. Reyndust þau öll neikvæð. Þó að veiran geti fundist hjá einkennalausum einstaklingi er talið ólíklegt að þeir smiti aðra, þótt það geti gerst í stöku tilfellum. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Neytendastofa hefur birt upplýsingar á vef sínum: Afpöntun og aflýsing pakkaferðar.

Í gær var tilkynnt um skilgreind áhættusvæði með mikla og litla smitáhættu og er það mat óbreytt. Svæði með mikla smitáhættu eru Kína, fjögur héruð á Norður-Ítalíu (Lombardía, Venetó, Emilia Rómanja og Píemonte), Suður-Kórea og Íran. Sóttvarnalæknir ráðleggur einstaklingum frá því að fara til þessara landa/svæða að nauðsynjalausu, en þeim sem koma hingað frá þessum stöðum er ráðlagt að fara í 14 daga sóttkví. Athugið að þeir sem fara um þessi svæði en dvelja ekki á þeim þurfa ekki að fara í sóttkví. Þannig þurfa þeir sem fljúga til eða frá þessum svæðum, eftir dvöl á skíðasvæðum utan þeirra, ekki að fara í sóttkví.

Svæði með litla smitáhættu
Áhættusvæði sem skilgreind hafa verið með litla smitáhættu eru önnur svæði á Ítalíu, Japan, Singapúr, Hong Kong og Tenerife (fyrir utan H10 Costa Adeje Palace-hótelið). Ferðamenn sem eru nú þegar á þessum svæðum og þeir sem hafa nýlega komið þaðan eru beðnir um að huga vel að persónulegu hreinlæti og sýkingavörnum en ekki er talin nauðsyn á sérstakri sóttkví fyrir þá sem eru nýkomnir frá þessum svæðum. Einstaklingar sem koma frá svæðum með litla áhættu eru beðnir að láta vita í síma 1700 ef þeir veikjast innan 14 daga eftir brottför frá þessum svæðum.

Gagnagrunnur fyrir Íslendinga erlendis

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur opnað sérstakan gagnagrunn fyrir Íslendinga erlendis sem óska eftir að vera á skráðir hjá utanríkisráðuneytinu og upplýstir um ferðaráð vegna COVID-19-veirunnar meðan á dvöl þeirra stendur. Í morgun höfðu yfir eitt þúsund einstaklingar verið skráðir í grunninn.

Aðgerðir í alþjóðahöfnum 
Á Keflavíkurflugvelli, Akureyri og Seyðisfirði eru sendar upplýsingar til farþega um að tilkynna skuli veikindi í síma 1700 eða hringja í heilsugæsluna ef einstaklingar finna fyrir veikindum eftir að hafa verið á skilgreindum áhættusvæðum. Á flugvöllunum hafa viðbragðsáætlanir verið uppfærðar.

Almennt hreinlæti mikilvægt
Ferðamenn sem eru nú þegar á skilgreindum áhættusvæðum og þeir sem hafa nýlega komið þaðan eru beðnir um að huga vel að persónulegu hreinlæti og sýkingavörnum. Þær fela meðal annars í sér að þvo hendur oft og vel, hafa klút fyrir andlitinu við hnerra og hósta í olnbogabót og nota handspritt. Almenningur getur með einföldum hætti dregið úr sýkingarhættu með því að gæta vel að persónulegu hreinlæti. Handþvottur og almennt hreinlæti í kringum augu, nef og munn og það að forðast að heilsa með handabandi hefur lykilþýðingu við að forðast smit og fækka smitleiðum. 

Einstaklingar sem fá einkenni frá öndunarfærum, sérstaklega með hita, skulu hafa samband við Læknavaktina í síma 1700 eða sína heilsugæslu símleiðis en ekki mæta óboðaðir á sjúklingamóttökur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert