Forföll vegna kórónuveiru séu greiðsluskyld

Drífa Snædal, forseti ASÍ, í húsnæði sambandsins.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, í húsnæði sambandsins. mbl.is/Hari

Launafólk sem sett er í sóttkví eða gert er að læknisráði að halda sig heima og umgangast ekki vinnufélaga eða annað fólk í umhverfi sínu vegna þess að það sé sýkt af kórónuveirunni COVID-19 eða sé hugsanlega smitberi hans er að mati Alþýðusambands Íslands óvinnufært vegna sjúkdóms eða vegna hættu á því að verða óvinnufært vegna hans og eru forföll þess því greiðsluskyld samkvæmt ákvæðum kjarasamninga og laga.

Þetta kemur fram í tilkynningu ASÍ. Þar segir jafnframt að miðstjórn muni fjalla um þá stöðu sem upp er komin og viðbrögð við henni á fundi sínum næstkomandi miðvikudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert