Innanlandssmitum kórónuveiru fjölgar

Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir í dag.
Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvö ný innanlandstilfelli af kórónuveirunni voru staðfest nú undir kvöld og eru þau nú orðin fjögur. Samtals hafa því átta smit verið staðfest í dag og smitin á Íslandi orðin 45 talsins. Innanlandssmitin hafa öll tengingu við við fólk sem var á skíðasvæðum á Norður-Ítalíu eða Austurríki. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir staðfesti þetta kvöldfréttum RÚV.

Í dag var lýst yfir neyðarstigi almannavarna vegna smita innanlands en ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um samkomubann. Það kemur þó að því fyrr en síðar.

Allar heimsóknir á Landspítala hafa hins vegar verið bannaðar og fjölmörg hjúkrunarheimili hafa gripið til þess sama. Þá hefur starfsstöðvum borgarinnar sem halda halda úti þjón­ustu og starf­semi fyr­ir fólk sem er í viðkvæmri stöðu eða með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma verið lokað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert