Rannsaka andlát sem mögulega tengist veirunni

Erlendur ferðamaður leitaði til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík vegna alvarlegra …
Erlendur ferðamaður leitaði til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík vegna alvarlegra veikinda í gær reyndist smitaður af veirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Hann lést stuttu eftir komuna á stofnunina. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson

Erlendur ferðamaður sem leitaði til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík vegna alvarlegra veikinda í gær reyndist smitaður af veirunni sem veldur COVID-19-sjúkdómnum. Maðurinn lést stuttu eftir komuna á stofnunina. Dánarorsök liggur ekki fyrir en sjúkdómseinkennin voru ekki dæmigerð fyrir COVID-19. Unnið er að því að skera úr um dánarorsökina.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnstöð almannavarna. 

Krufning fer fram á Landspítalanum og segir Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra Landspítalans, í samtali við mbl.is að unnið sé að því að krufning fari fram hið snarasta.

Margþætt vinna tekur nú við, bæði varðandi andlát mannsins og stuðning við hans nánustu. Þá þarf að styðja við og setja þá heilbrigðisstarfsmenn sem komu að meðferð mannsins í sóttkví, sótthreinsa heilsugæslustöðina ásamt því að tryggja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu fyrir Húsvíkinga.

Öll þessi verkefni eru unnin á vegum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, í náinni samvinnu við sóttvarnalækni, landlækni, Rauða krossinn og er unnið í samstarfi við aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi eystra og heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík verður í lágmarki, en eins og áður sagði er allt kapp lag á að tryggja að hægt verði að halda uppi mikilvægri þjónustu við íbúa á starfssvæði hennar og aðra sem kunna að þurfa á þjónustu hennar að halda. Tilkynningar er að vænta um hvernig þjónustu verður hagað, að því er segir í tilkynningu almannavarna.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert