Sóttkvíin í Húnaþingi vestra felld úr gildi

Frá sjúkrahúsinu á Hvammstanga.
Frá sjúkrahúsinu á Hvammstanga. mbl.is/Eggert

Úrvinnslusóttkvíin sem sett var á í Húnaþingi vestra 21. mars verður felld úr gildi á miðnætti. Frá því tímamarki gilda almennar reglur um samkomubann sem settar voru af sóttvarnalækni og gilda fyrir landið allt.

Aðgerðastjórn almannavarna Norðurlands vestra greinir frá þessu og beinir því til almennings að gæta almennra sóttvarna og virða þær reglur og viðmið sem gefin hafa verið út af sóttvarnalækni til hins ýtrasta.

Færir aðgerðastjórnin íbúum Húnaþings vestra „sérstakar þakkir fyrir að hafa sýnt skilning, þolinmæði, samvinnu og að hafa brugðist vel við þeim aðstæðum sem úrvinnslusóttkví hefur haft í för með sér fyrir íbúa svæðisins og starfsemi innan sveitarfélagsins“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert