Öryrkjar fá eingreiðslu vegna kórónuveirunnar

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar, sem eiga rétt á orlofsuppbót á árinu 2020, fá 20 þúsund króna eingreiðslu til viðbótar vegna þeirra áhrifa sem COVID-19-faraldurinn hefur haft.

Tillaga þess efnis var samþykkt á Alþingi í gær sem hluti af aðgerðapakka stjórnvalda vegna COVID-19. Jafnframt var gerð breyting á lögum um almannatryggingar til að þessi greiðsla gæti farið fram. Greiðslan kemur til framkvæmda 1. júní næstkomandi.

Greiðslan kemur til viðbótar þeirri orlofsuppbót sem örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar eiga rétt á í ár og telst ekki til tekna þeirra. Hún mun þar af leiðandi ekki skerða aðrar greiðslur til hópsins.

Miðað er við að um það bil 20.000 örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar uppfylli skilyrðið um rétt á orlofsuppbót á árinu 2020 og er kostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðarinnar áætlaður um 400 milljónir króna. 

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra, segir í fréttatilkynningu: „Áhrifanna af COVID-19-faraldrinum gætir víða í okkar samfélagi og við höfum frá upphafi lagt áherslu á það að styðja við viðkvæma hópa á þessum tímum. Á nokkrum vikum hefur daglegt líf okkar allra raskast mikið og aukið álag á öllum sviðum samfélagsins, ekki síst þá hópa sem minna mega sín. Það er því einkar ánægjulegt að þessi tillaga hafi verið samþykkt á Alþingi. Saman förum við í gegnum skaflinn.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert