Faraldurinn á Norðurlandi allt að hálfum mánuði seinna á ferðinni

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri. mbl.is/Jón Pétur

Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, segir að kórónuveirusmit á Norðurlandi eystra séu nú orðin 37 og alls hafi 6 smitaðir lagst inn á COVID-deild sjúkrahússins. Svo virðist sem faraldurinn á Norðurlandi sé allt að tveimur vikum seinna á ferðinni en á suðvesturhorninu. Sá tími hafi nýst vel til undirbúnings. 

Þetta kemur fram í pistli sem Bjarni birtir á vef sjúkrahússins. 

Hann segir að þær áskoranir sem heilbrigðisþjónustan standi frammi fyrir í dag séu mjög krefjandi. „Hér er birtingarmyndin í meginþáttum þríþætt þ.e. að veita nauðsynlega sjúkrahúsþjónustu, að taka á móti þeim COVID-19-sjúklingum sem þurfa á sjúkrahúsvist að halda og að sjá til þess að mönnun og aðföng séu nægjanleg til að sinna þessum verkefnum,“ skrifar hann. 

Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri.
Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Ljósmynd/Aðsend

Bjarni bendir á, að fyrsta COVID-19-smitið á Norðurlandi hafi greinst 15. mars og fyrsta innlögn smitaðs einstaklings hafi verið 26. mars.

„Smit á Norðurlandi eystra eru nú orðin 37 og alls hafa 6 smitaðir lagst inn á COVID-deild sjúkrahússins. Frá því fyrsti starfsmaðurinn fór í sóttkví 29. febrúar hafa alls 32 starfsmenn verið í sóttkví og þar af 3 í einangrun.

Tíminn nýst vel til undirbúnings

Svo virðist sem COVID-19-faraldurinn á Norðurlandi sé allt að tveimur vikum seinna á ferðinni en á suðvesturhorninu. Sá tími hefur nýst vel til undirbúnings og skapað rými til að yfirfara og aðlaga þær lausnir sem þar hafa gefist vel í baráttunni við faraldurinn. Hvort heldur sem er innan sjúkrahússins eða skiptingu verka milli sjúkrahússins og annarra heilbrigðisstofnana,“ skrifar Bjarni. 

Hann greinir ennfremur frá því að á mánudaginn verði COVID-göngudeild opnuð en hún muni taka á móti smituðum einstaklingum sem dvelji utan sjúkrahúss en þurfi á skoðun að halda.

„Vel hefur tekist að halda úti nauðsynlegri þjónustu og sjúkrahúsið er vel í stakk búið til að taka á móti COVID-19-sjúklingum. Mönnunarmál hafa enn sem komið er gengið upp m.a. með tilfærslu starfsmanna og þátttöku heilbrigðisstarfsfólks úr bakvarðasveitinni. Ljóst er að enn frekar reynir á mönnunarmálin á komandi dögum og ánægjulegt að finna að í þeim efnum liggur enginn á liði sínu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert