Reyndi að fela sig fyrir lögreglu

Innbrotsþjófurinn reyndi í fyrstu að fela sig og síðan að …
Innbrotsþjófurinn reyndi í fyrstu að fela sig og síðan að hlaupa í burtu er lögregla kom á vettvang. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert

Brotist var inn í fyrirtæki í Garðabæ á öðrum tímanum í nótt. Tilkynning barst lögreglu eftir endurtekin innbrotsboð frá eftirlitskerfi og þegar lögregla koma á vettvang reyndi karlmaður á fertugsaldri að fela sig. 

Þegar lögregla veitti honum athygli reyndi maðurinn að hlaupa í burtu. Lögregla hafði uppi á manninum, handtók hann og vistaði í fangageymslu. Skemmdir urðu á hurðum eftir innbrotið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert