Grái herinn í mál við ríkið

Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. mbl.is/Þór

Þrír félagar úr Gráa hernum, baráttuhópi eldra fólks um lífeyrismál, hafa að beiðni og fyrir hönd samtakanna höfðað mál á hendur Tryggingastofnun fyrir hönd íslenska ríkisins vegna skerðinga stofnunarinnar á ellilífeyri og heimilisuppbót á móti greiðslum frá lífeyrissjóðum.

Málshöfðunin er reist á því sjónarmiði að með skerðingu opinberra lífeyrisgreiðslna í hlutfalli við réttindi, sem ellilífeyristakar hafa áunnið sér í lífeyrissjóðum með vinnuframlagi sínu og iðgjöldum, sé gengið gegn stjórnarskrárvörðum eignarrétti lífeyristaka, að því er fram kemur á vef Gráa hersins.

Þar segir jafnframt, að þessar skerðingar nemi allt að 56,9% af greiðslum úr lífeyrissjóði.

„Þegar einnig sé tekið tillit til tekjuskatta sé því um að ræða ígildi eignaupptöku á allt að 72,9% greiðslna frá lífeyrissjóðunum. Þetta sé brot á 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. 1. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi eignarréttarins, og ákvæðum 65. gr. stjórnarskrárinnar og 14. gr. mannréttindasáttmálans, sem leggja bann við mismunun,“ segir í tilkynningu. 

Þá kemur fram, að í stefnunni sé það rakið að kerfi skyldulífeyrissparnaðar, sem komið var á fót með kjarasamningum á árinu 1969, hafi verið ætlað að koma til viðbótar en ekki í stað almannatrygginga. Með núverandi skerðingum sé verulegur hluti þess ávinnings sem rekja megi til lífeyrissjóðakerfisins hins vegar færður frá sjóðfélögum til ríkisins.

„Í stað þess að sjóðfélagar fái sjálfir notið lífeyrissparnaðar síns séu réttindi þeirra í lífeyrissjóðunum notuð til að draga úr útgjöldum ríkisins til almannatrygginga.“

Nánar hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert