Laus úr haldi eftir gabbútkall

Ölfusárbrú. Málið telst upplýst og fer nú sína leið til …
Ölfusárbrú. Málið telst upplýst og fer nú sína leið til ákæruvalds til ákvörðunar um framhald þess en refsivert er að gabba lögreglu. mbl.is/Sigurður Bogi

Rúmlega tvítugur karlmaður sem var handtekinn í nótt vegna útkalls að Ölfusá hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu. 

Um gabb var að ræða en maðurinn hringdi eftir aðstoð lögreglu vegna manneskju sem átti að hafa dottið í ána. Hann gaf sínar skýringar á útkallinu að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á Facebook. 

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að maðurinn hefði fundist í felum í runna á árbakkanum þegar lögregla og viðbragðsaðilar voru við það að hefja allsherjarleit líkt og tíðkast þegar tilkynningar af þessu tagi berast lögreglu. 

Skýrsla var tekin af manninum í dag og hann síðan látinn laus. Málið telst upplýst og fer nú sína leið til ákæruvalds til ákvörðunar um framhald þess en refsivert er að gabba lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert