Lögreglan á Suðurlandi lagði á dögunum hald á 30 kg af kannabisefnum sem voru tilbúin til þurrkunar og pökkunar. Fundust efnin í flutningarbifreið sem var staðsett í uppsveitum Árnessýslu.
Lögreglan greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni nú fyrir stuttu.
Þá er einnig greint frá því að lögreglumenn hafi í lok síðustu viku fundið töluvert magn fíkniefna í söluumbúðum við húsleit á Selfossi. Húsráðandi er í því tilfelli grunaður um sölu og dreifingu efnanna.