Útfærslu á stuðningi við fjölmiðla lokið

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur birt reglugerð um fyrirkomulag …
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur birt reglugerð um fyrirkomulag við úthlutun stuðnings til einkarekinna fjölmiðla vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. mbl.is/Kristinn Magnússon

Reglugerð mennta- og menningarmálaráðherra þar sem fyrirkomulag um úthlutun 400 milljóna króna sérstaks rekstrarstuðnings við einkarekna fjölmiðla, til að mæta efnahagslegum áhrifum kórónuveirufaraldursins hefur verið kynnt í ríkisstjórn og birt á vef Stjórnartíðinda.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins, en reglugerðin er sett með stoð í lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru sem samþykkt voru á Alþingi 11 maí.

Þar er tilgreint að við ákvörðun um fjárhæð stuðnings verði litið til launa, fjölda starfsmanna og verktakagreiðslna vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni á ritstjórnum árið 2019, ásamt útgáfutíðni miðilsins og fjölbreytileika.

Stuðningurinn skerðist í jöfnum hlutföllum til umsækjenda

Stuðningurinn verður að hámarki 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjenda en stuðningur til hvers umsækjanda getur ekki orðið hærri en en sem nemur 25% af þeirri fjárveitingu sem Alþingi hefur úthlutað til sérstaks rekstrarstuðnings.

Undir stuðningshæfan rekstrarkostnað fellur beinn launakostnaður fjölmiðils til blaða- og fréttamanna, ritstjóra og aðstoðarritstjóra, myndatökumanna og ljósmyndara á árinu 2019 vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni og beinar verktakagreiðslur til sambærilegra aðila.

Fari svo að heildarfjárhæð samþykktra umsókna um stuðningshæfan rekstrarkostnað verði umfram fjárveitingar Alþingis skerðist stuðningurinn til allra umsækjenda í jöfnum hlutföllum.

Ýmis skilyrði til að fá styrk

Umsjón með umsóknarferli og mat á umsóknum verður á höndum fjölmiðlanefndar og mun hún skila tillögum um úthlutun stuðningsins til ráðherra. Umsóknir eiga að vera afgreiddar fyrir 1. september. Meðal skilyrða fyrir sérstökum rekstrarstuðningi eru:

- Fjölmiðill skal vera skráður eða hafa leyfi til hljóð- eða myndmiðlunar.

- Efni sem birtist í fjölmiðli skal vera fjölbreytt og ætlað fyrir almenning á Íslandi. Staðbundnir fjölmiðlar eru undanþegnir þessu skilyrði.

- Fjölmiðill skal hafa starfað með leyfi frá fjölmiðlanefnd, hafa staðið skil á árlegri skýrslugjöf til hennar og veitt nefndinni fullnægjandi gögn og upplýsingar um eignarhald sitt, þar með talin gögn um raunverulega eigendur.

- Fjölmiðill skal ekki vera í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattsektir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert