Vill að hæfi hæstaréttardómara sé skoðað

Skúli Gunnar Sigfússon (t.v.) og Sveinn Andri Sveinsson (miðja) hafa …
Skúli Gunnar Sigfússon (t.v.) og Sveinn Andri Sveinsson (miðja) hafa um langt skeið eldað grátt silfur saman vegna þrotabús EK 1923. Stærsta mál þrotabúsins verður tekið fyrir í Hæstarétti í haust og nú er deilt um hæfi dómarans Benedikts Bogasonar (t.h.) Samsett mynd

Heiðar Ásberg Atlason, lögmaður Sjöstjörnunnar, félags athafnarmannsins Skúla Gunnars Sigfússonar, hefur sent forseta Hæstaréttar bréf þar sem hann krefst þess að hæfi hæstaréttardómarans Benedikts Bogasonar verði skoðað í máli þrotabús EK1923 gegn Sjöstjörnunni sem flutt verður fyrir réttinum í október. Vísar hann til þess að Benedikt hafi nýlega verið í útskriftarveislu hjá tveimur dætrum skiptastjóra EK1923, Sveini Andra Sveinssyni.

Fjöldi mála komu upp í tengslum við skipti EK1923, sem áður var í eigu Skúla, en það mál sem nú verður tekið fyrir í Hæstarétti er það lang stærsta. Er þar tekist á um riftun á 223 milljónum annars vegar og 21 milljón hins vegar sem Sveinn Andri vildi fá frá fé­lag­inu Sjö­stjörn­unni.

Í héraði hafði Sjöstjarn­an verið dæmt til að greiða þrota­bú­inu báðar upphæðirnar auk vaxta, sam­tals yfir 400 millj­ón­ir, en Lands­rétt­ur taldi aðeins að greiða ætti lægri upp­hæðina. Var sömu­leiðis felld út kyrr­setn­ing á eign­um sem höfðu tengst greiðslu hærri upp­hæðar­inn­ar. Sveinn Andri áfrýjaði til Hæstaréttar og samþykkti Hæstiréttur málskotsbeiðnina.

Lærimeistari „sem sá til þess að kröfurétturinn síaðist inn”

Heiðar segir í samtali við mbl.is að krafa hans snúist um hæfi hans til að dæma í máli vegna vinskapar við Svein Andra. „Þú býður ekki kunningjum í útskriftarveislu, þú býður vinum þínum,“ segir hann, en í júní útskrifuðust tvær dætur Sveins úr lögfræði og við það tilefni birti Sveinn Andri á Facebook mynd af þeim ásamt Benedikt þar sem tekið var fram að Benedikt væri lærimeistari þeirra „sem sá til þess að kröfurétturinn síaðist inn.”

Ásamt störfum sínum í Hæstarétti er Benedikt prófessor við lagadeild Háskóla Íslands þar sem hann kenndi meðal annars kröfurétt I og kröfurétt II á síðasta námsári.

Dómarar eiga sjálfir að gæta að eigin hæfi í málum sem þeir dæma og segist Heiðar því hafa sent bréfið á forseta réttarins í vikunni þar sem hann gerði kröfu um að skoðað yrði með hæfi Benedikts og að því yrði beint til hans að íhuga eigið hæfi í málinu.

Málið verður tekið fyrir í Hæstarétti í haust.
Málið verður tekið fyrir í Hæstarétti í haust. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert