Andlát: Gunnar Mýrdal Einarsson

Dr. Gunnar Mýrdal Einarsson læknir, sérfræðingur í brjóstholsskurðlækningum og yfirlæknir hjarta- og lungnaskurðdeildar Landspítala, lést 10. september sl. eftir harða baráttu við krabbamein, 56 ára að aldri.

Gunnar fæddist 11. apríl 1964 á Akranesi, sonur hjónanna Einars S. Mýrdals Jónssonar skipasmíðameistara og Huldu Haraldsdóttur, fv. innheimtustjóra. Gunnar varð stúdent frá Fjölbrautaskóla Vesturlands 1984. Hann lauk prófi frá læknadeild HÍ vorið 1991, sérfræðinámi í almennum skurðlækningum 1998 og í brjóstholsskurðlækningum frá Uppsalaháskóla árið 2001. Gunnar varði doktorsritgerð sína við Uppsalaháskóla árið 2003 og lauk MBA-námi í stjórnun við HR árið 2016.

Gunnar fór til sérnáms í Svíþjóð árið 1996 þar sem hann starfaði við Centrallasarettet Västerås fyrstu 2 árin. Starfaði síðan við hjarta- og lungnaskurðdeild Uppsala Akademiska Sjukhus þar sem hann var yfirlæknir árin 2006-2008.

Gunnar fluttist heim til Íslands árið 2008 og starfaði sem sérfræðingur við brjóstholsskurðlækningadeild LSH frá þeim tíma og var yfirlæknir við deildina frá 2016. Gunnar sat í stjórn Læknafélags Íslands 2018-2019 sem aðildarfulltrúi Félags sjúkrahúslækna. Eftir Gunnar liggja margar fræðigreinar og rannsóknaskýrslur.

Eiginkona Gunnars er Ingibjörg Kristjánsdóttir, f. 1979, lyflæknir og sérfræðingur í hjartalyflækningum. Gunnar lætur eftir sig sjö börn og eina ófædda dóttur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert