Egypska fjölskyldan sem átti að vísa úr landi í morgun er ófundin og ekki hefur verið tekin ákvörðun um að lýsa eftir henni.
Þetta segir Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri almannavarna.
„Staðan er óbreytt frá því í morgun. Stoðdeildin [ríkislögreglustjóra] er með þetta mál fyrir framan sig og hefur verið að skoða stöðuna,“ segir Jóhann, sem kveðst ekki eiga von á því að lýst verði eftir fjölskyldunni.
Hann segir að í málum sem þessum sé alltaf reynt að gæta meðalhófs, sérstaklega þegar börn eiga í hlut. Markmiðið sé að vinna málið í samvinnu við fólkið og þá aðila sem komi að því.
„Ég býst ekki við vendingu í dag. Það er enginn asi varðandi þetta mál. Það er tekið skref fyrir skref í rólegheitum. Það er öllum fyrir bestu að þetta sé gert í sem bestri sátt,“ segir Jóhann.
Ekki var unnt að framfylgja frávísun fjölskyldu frá landinu sem fara átti fram í morgun. Fólkið var ekki á fyrirframákveðnum stað þar stoðdeild hugðist fylgja því úr landi.