Höfðu tvær vikur til að flytja fjölskylduna

Mótmæli á Austuvelli í gær vegna brottvísunar hinnar egypsku Kehdr …
Mótmæli á Austuvelli í gær vegna brottvísunar hinnar egypsku Kehdr fjöl­skyld­u. mbl.is/Kristinn Magnússon

Embætti ríkislögreglustjóra sendi frá sér tilkynningu rétt í þessu þar sem sagt er að ekki sé rétt að stoðdeild ríkilögreglustjóra hafi haft sex vikur til að flytja egypska fjölskyldu sem fyrirhugað var að senda úr landi í morgun úr landi á gildum skilríkjum. Beiðni um framkvæmd ákvörðunar barst stoðdeild frá Útlendingastofnun þann 13. janúar sl., tveimur vikum áður en skilríki tveggja fjölskyldumeðlima runnu út (28.1. 2020).

Magnús D. Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar sem sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi, sagði í samtali við mbl.is í dag að Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri hjá Útlendingastofnun, hefði ekki farið með rétt mál í Kastljósi í gærkvöldi. Magnús sagði að yfirvöld hefðu haft tæpa 50 daga til að flytja fólkið úr landi á gildum skilríkjum. 

„Úrskurður kærunefndar útlendingamála sem staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja fjölskyldunni um vernd var birtur 18. nóvember 2019. Fjölskyldunni var veittur 30 daga frestur til sjálfviljugrar heimfarar sem rann út 18. desember. Í millitíðinni óskaði fjölskyldan eftir því að kærunefnd útlendingamála frestaði réttaráhrifum úrskurðarins til að fara með málið fyrir dómstóla en þeirri beiðni var hafnað af kærunefnd 10. janúar,“ segir í fyrrnefndri tilkynningu. 

Náðu ekki að skipuleggja flutninginn á tveimur vikum

„Þegar ljóst var að fjölskyldan hygðist ekki fara sjálfviljug til heimalands og að réttaráhrifum yrði ekki frestað vísaði Útlendingastofnun málinu til stoðdeildar ríkislögreglustjóra til framkvæmdar með beiðni dagsettri 13.1. 2020. 

Ekki var unnt að skipuleggja flutning fjölskyldunnar til heimalands á þeim tveimur vikum sem skilríki allra fjölskyldumeðlima voru gild. Slíkar fylgdir krefjast lengri undirbúnings sem meðal annars felst í því afla heimilda fyrir íslenska lögreglumenn til að ferðast til og í gegnum þau ríki sem ferðaleiðin gerir kröfu um. 

Vinna við undirbúning fylgdarinnar hófst eftir að málið kom á borð stoðdeildar og var strax ljóst að afla þyrfti gildra skilríkja, annaðhvort með framlengingu eða útgáfu nýrra skilríkja. Stoðdeild átti í samskiptum við lögmann fjölskyldunnar um þessa stöðu og tók hún þá ákvörðun að óska ekki eftir framlengingu vegabréfanna eins og þegar hefur komið fram,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Fjölskyldunni hefur ekki verið vísað úr landi, að því er mbl.is kemst næst, en fólkið var ekki á fyr­ir­framákveðnum stað þegar stoðdeild hugðist fylgja því úr landi. Ekki er vitað um dval­arstað fólks­ins sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert