Hjólhýsasvæðinu á Laugarvatni verður lokað

Hjólahýsasvæðið á Laugarvatni á sér 50 ára sögu.
Hjólahýsasvæðið á Laugarvatni á sér 50 ára sögu. mbl.is/Sigurður Bogi

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum í dag að rekstri hjólhýsasvæðis við Laugarvatn verði hætt innan tveggja ára. Ákvörðunin er tekin vegna þess að öryggi fólks á svæðinu er verulega ábótavant, komi þar upp eldur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bláskógabyggð.

Í bréfi lögreglustjórans á Suðurlandi og slökkviliðsstjóra Brunavarna Árnessýslu frá því í maí á þessu ári kom fram að ástandið á svæðinu með tilliti til brunavarna og öryggis fólks sé með öllu óviðunandi. Í bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá því í ágúst kom fram að það sé á ábyrgð eiganda eða rekstraraðila að tryggja fullnægjandi aðgerðir gegn eldsvoða. Rekstur hjólahýsasvæðisins á sér 50 ára sögu.

Ekki til fjármagn

„Sveitarstjórn telur sér ekki fært að leggja fjármagn í þá uppbyggingu svæðisins, sem til þyrfti að koma til að ástandið yrði viðunandi. Ljóst er að sveitarfélagið yrði að leggja í verulegan kostnað til að koma öryggismálum á svæðinu í viðunandi horf, svo sem með öflugri vatnslögn inn á svæðið fyrir slökkvivatn og uppsetningu brunahana og gerð flóttaleiða.

Deiliskipuleggja þyrfti svæðið og gera hluta leigutaka að víkja af svæðinu, til að virða fjarlægðarmörk milli eininga, og fjarlægja talsvert af byggingum. Þá liggur fyrir beiðni um frekari uppbyggingu hreinlætisaðstöðu, auk þess sem þyrfti að bæta úr fráveitumálum,“ segir í tilkynningunni.

Fyrirkomulag rekstrar hefur verið þannig að svæðið er á landi sveitarfélagsins og á það götur, lagnir og hreinlætisaðstöðu á svæðinu. Samningar hafa verið gerðir á milli sveitarfélagsins og fyrirtækis sem annast rekstur svæðisins og á milli rekstraraðila og einstaka leigutaka.

Samningar við leigutaka eru gerðir til 2ja ára í senn og er misjafnt hversu langt er þar til þeir renna út. Samþykkt sveitarstjórnar er á þá leið að gildandi samningar við leigutaka verði ekki endurnýjaðir þegar þeir renna út og verða því engir samningar i gildi að tveimur árum liðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert