Heiðarlegur maður að nafni Garðar gerði sér ferð á lögreglustöðina í Keflavík í dag og skilaði þar seðlaveski sem hann hafði fundið í miðbæ Keflavíkur.
Í veskinu var umtalsvert af reiðufé auk ýmissa skilríkja. Lögreglan á Suðurnesjum segir frá þessu á Facebook.
Greiðlega gekk að hafa upp á eigandanum og er veskið er nú komið í hendur hans. Lögregla og eigandi veskisins þakka Garðari kærlega fyrir. „Það mættu fleiri vera eins og Garðar,“ klykkir lögreglan út með.
Föstudagsfréttin...Rétt í þessu kom hann Garðar á lögreglustöðina með seðlaveski sem hann fann í miðbæ Keflavíkur. Í...
Posted by Lögreglan á Suðurnesjum on Friday, September 18, 2020