Daði Már nýr varaformaður Viðreisnar

Þorgerður Katrín og Daði Már, formaður og varaformaður Viðreisnar, að …
Þorgerður Katrín og Daði Már, formaður og varaformaður Viðreisnar, að lokun landsþingi. Ljósmynd/Aðsend

Landsþingi Viðreisnar lauk rétt í þessu með kjöri Daða Más Kristóferssonar sem varaformanns flokksins. Alls kusu 211 og hlaut Daði Már 198 atkvæði. Ágúst Smári Bjarkarson fékk 8 atkvæði og auð atkvæði voru fimm, að því er fram kemur í tilkynningu.

Fyrr á þinginu var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir endurkjörin sem formaður með 341 atkvæði.

Í stjórn voru kjörin Axel Sigurðsson, Benedikt Jóhannesson, Elín Anna Gísladóttir, Jasmina Vajzovic Crnac og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Tveir varamenn í stjórn eru Karl Pétur Jónsson og Sonja Sigríður Jónsdóttir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert