Landspítala berast gjafir og góðar óskir

Frá gjörgæsludeild Landspítala. Sú í Fossvogi verður fimmtug á morgun.
Frá gjörgæsludeild Landspítala. Sú í Fossvogi verður fimmtug á morgun. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Starfsfólk Landspítala hefur fundið mikinn hlýhug frá fjölmörgum undanfarið og spítalanum borist gjafir, kveðjur og góðar óskir. Eins og flestum er kunnugt hefur starfsemi Covid-19 haft mikil áhrif á starfsemi spítalans undanfarið og ljóst er að svo verður enn um sinn, að því er fram kemur í pistli forstjóra spítalans. 

Í pistlinum birtir hann bréf til starfsfólks spítalans sem honum barst frá Kristínu Ástu, 11 ára stúlku í Reykjavík. 

„Kristín Ásta er þakklát fyrir störf okkar á Landspítala og minnir okkur á að gera okkar besta. Það ætlum við svo sannarlega að gera áfram!“ skrifar Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala.

Gjörgæslan fimmtug 

Gjörgæsludeild Landspítala fagnar fimmtugsafmæli á morgun, 24. október. Þar eru nú þrír inniliggjandi vegna Covid-19. Páll fer fögrum orðum um um görgæsludeildina í pistlinum. 

„Gjörgæsludeildin er sérlega ern og hefur allan sinn starfstíma verið í sífelldri endurnýjun og stöðugri þekkingarleit. Þeir eru ófáir sjúklingarnir og fjölskyldur þeirra sem á þessum langa tíma hafa notið einstakrar þekkingar og alúðar þess frábæra starfsfólks sem þar hefur starfað og starfar nú. Aðall starfseminnar er gríðarleg þekking en sömuleiðis ótrúlegur sveigjanleiki, sem við höfum t.d. séð núna í ár þegar deildin og systurdeild hennar við Hringbraut og raunar spítalinn allur, hefur haft endaskipti til að sinna COVID-19 sjúklingum auk allra hinna sem þjónustunnar þarfnast,“ skrifar Páll. 

Hann segir að mörgum sem koma á deildina sé eðlilega brugðið í fyrstu vegna framandi umhverfis sem blasir þar við.

„Hins vegar er deildin annáluð fyrir einstakt viðmót starfsfólks sem auðveldar fólki þá erfiðu reynslu sem felst í því að vera sjúklingur eða aðstandandi á gjörgæslu. Reynsla og þekking á flóknu umhverfi er gríðarlega mikilvæg og langur starfsaldur gerir mannauðinn ómetanlegan. Þar er sannarlega fremst meðal jafningja Anna Vigdís Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur sem hóf einmitt störf á gjörgæsludeildinni í árdaga hennar fyrir 50 árum,“ skrifar Páll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert