Mæla gegn ferðalögum á milli landshluta

Hér má sjá Egilsstaðaflugvöll. Aðgerðastjórn á Austurlandi hvetur fólk til …
Hér má sjá Egilsstaðaflugvöll. Aðgerðastjórn á Austurlandi hvetur fólk til að halda sig í sínum landshluta.

Einn er í einangrun vegna smits á Austurlandi en aðgerðarstjórn landshlutans vekur í tilkynningu athygli á fjölda smita sem hafa greinst að undanförnu á höfuðborgarsvæðinu.

Í því sambandi vísar aðgerðarstjórnin til fyrri leiðbeininga um að ferðast ekki milli landsvæða nema af brýnni þörf.

„Komi til þess að ferðalög verði ekki umflúin er hyggilegt að halda sig fjarri öllum mannfagnaði og hópum á því svæði sem heimsótt er. Gæta auk þess sérstaklega að öllum sóttvörnum og leiðbeiningum þegar heim er komið til að forða að smit geti borist um samfélagið og á vinnustaði að teknu tilliti til aðstæðna,“ segir í tilkynningunni.  

„Höldum sjó á aðventunni sem öðrum tímum og komumst þannig heil í höfn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert