Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri Sandgerðisskóla, hefur gefið kost á sér til að leiða lista Vinstri-grænna í Suðurkjördæmi í næstu alþingiskosningum. Ari Trausti Guðmundsson, sem leitt hefur lista Vinstri-grænna í kjördæminu, gaf út á fimmtudaginn að hann myndi ekki gefa aftur kost á sér í kosningum næsta haust.
Í yfirlýsingu á facebooksíðu Hólmfríðar segir hún að helstu baráttumál sín séu málefni barna og fjölskyldna á öllum tímum.
Hólmfríður er menntunarfræðingur og er formaður svæðisfélags Vinstri-grænna á Suðurnesjum.
„Í gegnum störf mín í stjórnmálum tel ég skipta miklu máli að áherslur VG fái stóraukið vægi í því fjölbreytta, gjöfula umhverfi og náttúru sem Suðurlandið er. Þá skiptir miklu að íbúi af fjölmennasta og fjölbreyttasta svæði kjördæmisins leiði listann með jafnrétti, jöfnuð, lýðræði, sjálfbærni, fjölmenningu og réttlæti að leiðarljósi,“ segir í tilkynningu hennar.
Þá segir hún að leggja þurfi ríka áherslu á að efla heilbrigðisþjónustu við íbúa og horfa til fjölbreyttari atvinnumöguleika og samfélags þar sem stutt sé við fjölmenningu og menntun í öllu kjördæminu með umhverfi, mannlíf og verndun náttúrunnar efst í huga.
Ég, Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri Sandgerðisskóla hef ákveðið að bjóða mig fram til að leiða lista VG í...
Posted by Hólmfríður Árnadóttir on Friday, November 27, 2020