Börn haldi sig heima í sóttkví

Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins hefur sent bréf til foreldra barna í grunn- og leikskólum þar sem farið er yfir þær sóttvarnareglur sem gilda á landamærunum. Bréfið er sent á íslensku, ensku og pólsku. Fólk er þar hvatt til að fara í sýnatöku og halda börnum heima á meðan þau eru í sóttkví.

„Nú líður senn að jólafríi í grunnskólum og munu eflaust einhverjir leggja land undir fót og heimsækja ástvini erlendis. Við þær aðstæður er mikilvægt að vera meðvituð um þær aðgerðir sem eru í gildi við landamærin á Íslandi þegar komið er heim á ný.

Farþegar geta farið í sýnatöku við komuna til landsins og seinni sýnatöku fimm dögum seinna til að stytta sóttkví. Sýnataka er ókeypis. Treysti fólk sér einhverra hluta vegna ekki í sýnatöku við landamærin þarf viðkomandi að vera í sóttkví í 14 daga.

Sóttvarnalæknir hefur hvatt alla að fara í sýnatöku á landamærunum og tökum við heilshugar undir þau skilaboð. Við hvetjum forsjáraðila til að halda börnum á leik- og grunnskólaaldri heima þann tíma sem sóttkví varir og beðið er eftir niðurstöðu úr seinni sýnatökunni. Tilgangurinn með því að halda börnum heima er að vernda skólastarf, þar sem veiran er því miður í miklum uppgangi víða um heim og því aukin hætta á að fólk smitist á ferðalögum erlendis. Fari fólk ekki í sýnatöku á landamærunum þarf það að fara í 14 daga í sóttkví og mælst er til þess að börnin séu einnig í sóttkví ásamt forsjáraðilum.

Eins og við höfum séð margoft í haust þegar komið hefur upp smit í skólum hefur það mikil áhrif á skólastarf. Í kjölfarið þurfa oft mörg börn og fjölskyldur þeirra að fara í sóttkví sem er íþyngjandi aðgerð sem raskar daglegu lífi. Hægt er að minnka á líkurnar á slíkum atburðum með því að fylgja tilmælum sóttvarnalæknis og einn þáttur í þeim er fara í sýnatöku á landamærunum við komuna til Íslands. Með von um góðar viðtökur og ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ár!“segir í bréfinu sem er undirritað af Jóni Viðari Matthíassyni, framkvæmdastjóra almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert