Engin kuldamet hafa verið slegin í dag. Mest hefur mælst 17 stiga frost á Hvanneyri að sögn veðurfræðings. Einnig hefur verið kalt á Þingvöllum og Húsafelli.
Á höfuðborgarsvæðinu mældist 9-10 stiga frost í morgun. Allt að 18 stiga frosti var spáð á landinu í dag.
Vel hefur gengið að veita heitu vatni til höfuðborgarsvæðisins það sem af er kuldakastinu.