Íslendingar bólusettir í upphafi nýs árs

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ljóst er að bólusetning Íslendinga mun hefjast í upphafi nýs árs. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Í færslu á Facebook vísar hún til þess að í dag hafi hafist bólusetningar við kórónuveirusmiti í Bretlandi.

„Í dag var einnig birt niðurstaða skoðanakönnunar Maskínu sem sýnir að 92% landsmanna ætla í bólusetningu, sem er gríðarlega mikilvægt vegna þess að því fleiri sem láta bólusetja sig því betur og hraðar verðum við varin fyrir veirunni,“ skrifar Katrín.

„Þetta eru tímamót í baráttunni gegn veirunni og við getum óhikað litið með bjartsýni til nýs árs. Samfélagið okkar mun þá byrja að færast smátt og smátt í eðlilegt horf. Við getum farið að njóta samvista óhindrað og efnahagslífið getur spyrnt kröftuglega við fótum og atvinnuleysi byrjað að ganga niður.“

Ekki síðustu aðgerðirnar

Katrín bendir á að í dag hafi heilbrigðisráðherra kynnt sóttvarnaraðgerðir sem gilda muni til 12. janúar.

„Þetta verða ekki síðustu aðgerðirnar í baráttunni en nú þegar bólusetningar eru í augsýn er ljóst að lokaspretturinn er að hefjast.

Við höfum öll staðið okkur frábærlega fram til þessa, sýnt ótrúlegt úthald og þolinmæði. Nú þurfum við klára þessa vegferð og leggja okkur sérstaklega fram og þannig tryggja að smit verði áfram í lágmarki þar til okkur hefur tekist að verja samfélagið með bólusetningum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert