Olía verði unnin úr plasti frá Sorpu bs.

Jón Viggó Gunnarsson.
Jón Viggó Gunnarsson.

Stjórn Sorpu bs. samþykkti í lok síðasta árs að veita framkvæmdastjóra félagsins heimild til að undirrita viljayfirlýsingu um þróunarsamstarf við PVD ehf. vegna verkefnis um vinnslu olíu úr plasti.

Samstarfið er hluti af því verkefni Sorpu að finna plasti, sem þangað er skilað, betri farveg og einn margra kosta við aðferðir og tækni sem PVD hefur fram að færa er að plastið þarf hvorki að vera sérvalið né hreint til að vera nothæft til olíuvinnslu. Tæknin hefur verið notuð erlendis þar sem hún hefur sannað gildi sitt og því ekki um tilraunaverkefni að ræða, segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu, í Morgunblaðinnu í dag.

„Þetta yrði því mjög fjölhæf innlend leið til að endurnýta plast og styður við áherslu Sorpu á betri nýtingu á þeim efnum sem berast til okkar. PVD mun til dæmis geta unnið lífdísil úr plastinu sem kæmi þá í stað innflutts jarðefnaeldsneytis,“ útskýrir Jón Viggó og bætir við:

„Það að nýta plast í olíuframleiðslu með þessum hætti gerir Sorpu kleift að endurnýta plast sem ætti sér annars ekki endurnýtingarfarveg nema í brennslu erlendis. Hlutur jarðefnaeldsneytis sem orkugjafa fer vonandi ört minnkandi á Íslandi á næstu árum en ólíklegt að því verði alfarið útrýmt og því jákvætt að framleiða lífdísil innanlands.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert