Greiða börnum fyrir kynferðislegt myndefni

Vitað sé að fullorðnir aðilar sem kaupa ljósmyndir af börnum …
Vitað sé að fullorðnir aðilar sem kaupa ljósmyndir af börnum noti myndirnar stundum gegn þeim til að fá þau til að senda fleiri og grófari myndir. AFP

Komið hafa upp nokkur tilvik á síðustu vikum þar sem fullorðnir aðilar hafa greitt ungmennum á grunnskólaaldri peninga fyrir kynferðislegar ljósmyndir.

Frá þessu er greint í erindi sem skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur sent skólastjórnendum, en bréfið er ritað í samstarfi við Samfok, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, og Heimilis og skóla, landssamtökum foreldra.

Fimm til tíu þúsund fyrir myndina

Bent er á að leið þessara fullorðnu aðila að samskiptum við ungmennin sé í flestum tilvikum í gegnum spjall á netinu og þá helst Snapchat og Instagram. Að auki hafi snjallsímaforritin Tiktok Telegram verið nefnd.

„Börnum eru boðnar á bilinu 5.000-10.000 krónur fyrir myndina og fer upphæðin eftir því hvað sést á myndinni og hversu skýr hún er. Greiðslur hafa farið fram í gegnum öpp eins og Aur og Kass,“ segir í erindinu.

Vitað sé að fullorðnir aðilar sem kaupa ljósmyndir af börnum noti myndirnar stundum gegn þeim til að fá þau til að senda fleiri og grófari myndir.

Þekkt leið í kynferðsbrotamálum

„Eins reyna þessir aðilar stundum að nálgast börn á frekari hátt m.a. með því að gefa þeim gjafir og bjóðast til að gera þeim einhvers konar greiða. Þegar slíkt á sér stað er viðkomandi að reyna að mynda persónulegt samband við ungmennin, búa til sameiginlegt leyndarmál og aðilinn á þá inni hjá þeim fyrir vikið,“ segir í erindinu.

„Þetta er því miður þekkt leið í kynferðisbrotamálum gegn börnum, að bjóða þeim sælgæti, peninga eða aðrar gjafir til að vinna sér inn traust og velvilja. Það getur því reynst barni erfiðara að neita viðkomandi um kynferðislega greiða ef það hefur þegið gjafir eða peninga frá viðkomandi. Barnið getur upplifað skömm yfir fyrri samskiptum og því getur það reynst barni erfitt að segja frá því sem hefur gerst. Fullorðnir eru í valdastöðu gagnvart börnum og ábyrgðin er alfarið í höndum hins fullorðna aðila.“

Tekið er fram að börn geti upplifað sölu á nektarmyndum sem einfalda leið til að eignast smá pening án þess að gera sér nokkra grein fyrir hættunni.

„Vitað er að sum börn hafa stolið myndum af netinu og selt hinum fullorðnu en mikilvægt er að stöðva strax aðgengi þessara aðila að börnum.“

Geti farið yfir reikningsyfirlitið

Bent er á að foreldrar geti farið yfir reikningsyfirlit barna sinna og athugað hvort ókunnugir aðilar hafi verið að leggja inn á börnin.

„Einnig er vert að vera á varðbergi ef barnið virðist eiga pening sem ekki er skýring á hvaðan kom (sum börn hafa látið millifæra á vini sína) og taka spjallið við barnið sitt um þennan veruleika.“

Barnið þurfi að átta sig á hættunni án þess að það upplifi skömm.

„Það getur reynst fullorðnum auðvelt að afvegaleiða börn og börnin bera ekki ábyrgð á því. Reynið því frekar að mynda öruggt rými fyrir ykkar barn til að segja frá ef það þekkir til slíkra mála eða hefur orðið fyrir slíku sjálft. Ef börn segja frá eða þið hafið upplýsingar eða grun um mál af þessum toga þá getur verið um að ræða brot á hegningarlögum. Því ber að tilkynna málið tafarlaust til lögreglu og barnaverndar í síma 411 9200.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert