Tveir greindust með smit innanlands

Byrjað var að bólusetja við Covid-19 á Íslandi síðustu viku …
Byrjað var að bólusetja við Covid-19 á Íslandi síðustu viku ársins 2020. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alls greindust tveir með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir voru í sóttkví. Þetta kemur fram á Covid.is. 20 eru á sjúkrahúsi, sem er fjölgun um einn frá því í gær. Enginn er á gjörgæslu. 127 eru í einangrun, sem eru 16 færri en í gær. 

Fjögur smit greindust á landamærunum. Eitt smit var virkt en beðið er mótefnamælingar í hinum þremur tilfellunum. 

Tekin voru 1.025 sýni, þar af 713 einkennasýni og 273 á landamærunum. 

Þeim fækkar töluvert sem eru í sóttkví. Í dag eru þeir 149 en í gær voru þeir 177.

14 daga ný­gengi inn­an­lands­smita á hverja 100.000 íbúa er 15,5 og lækkar þar með um 0,6 frá því í gær. Nýgengi smita á landamærunum fer úr 26,2 í 25,4. 

Samtals eru 83 í einangrun á höfuðborgarsvæðinu, sem er fækkun um 10 frá því í gær. Næstflestir eru í einangrun á Suðurlandi, eða 15, og á Suðurnesjum eru 14 í einangrun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert