Fagnar brotthvarfi „hrottans“

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í dag lætur af störfum sem forseti Bandaríkjanna nýfasistinn og hrottinn Donald Trump. Það er mikið fagnaðarefni og þarf ekki að styðja andstæðing hans neitt sérstaklega mikið til að fagna því,“ sagði Píratinn Helgi Hrafn Gunnarsson á Alþingi í dag.

Hann sagði að hér á landi hefðum við blessunarlega verið laus við mjög sýnilegan uppgang nýfasisma og komi þar margt til. Sá uppgangur sé hins vegar mjög skýr þegar litið er vestur um haf eða til Evrópu.

Vandinn er sá að við erum orðin svo vön því að búa í frjálslyndum lýðræðissamfélögum á þessu svæði, hér og í nágrannalöndum okkar, að okkur dettur einhvern veginn ekki til hugar að raunin geti verið að einhver voðaverk eins og þau sem voru framin á síðustu öld og eru hvað frægust og alræmdust geti verið framin aftur,“ sagði Helgi Hrafn og bætti við að slíkt gæti gerst.

Hann sagði að þegar litið sé til þess hvernig Donald Trump komst til valda sé virðingarleysi hans fyrir staðreyndum og sannleikanum áberandi.

Staðreyndir eru ekki viðhorf. Skoðanir eru ekki rök í eðli sínu. Ef við ætlum að verjast uppgangi nýfasismans, hvort sem það er til skemmri tíma eða lengri, verðum við að hafa hugföst þau lýðræðislegu gildi sem byggja á opinni, lýðræðislegri og upplýstri umræðu. Við megum ekki gleyma mikilvægi þess og við megum ekki láta eins og það gerist af sjálfu sér. Þegar við erum orðin fullorðin eigum við að geta gert greinarmun á staðreyndum og þvættingi. Staðan er sú að í hinum svokallaða vestræna heimi er það ekki svo skýrt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert