Versnandi veður með skafrenningi og blindu

Ferðaveður verður lítið sem ekkert á norður- og austurhluta landsins.
Ferðaveður verður lítið sem ekkert á norður- og austurhluta landsins. mbl.is/RAX

Veður fer nú versnandi norðan- og austanlands. Heldur ákafari hríð og hvessir jafnframt með skafrenningi og blindu. Ekki er horfur á að skáni að ráði fyrr en kemur fram á sunnudag, að því er fram kemur í ábendingu frá veðurfræðingi.

Gul veðurviðvörun er í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi og gildir hún fram á sunnudag.

Þar er spáð allhvassri eða hvassri norðanátt. Snjókomu eða éljum, mjög litlu skyggni á köflum og erfiðum akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum.

Bjart verður á suðurhluta landsins og frost 0 til 7 stig.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert