Jafnmörg andlát í fyrra og undanfarin ár

Horft til Hallgrímskirkju. Tíðasti aldur látinna árið 2020 var 88 …
Horft til Hallgrímskirkju. Tíðasti aldur látinna árið 2020 var 88 ára en 87 ára árin 2017-2019. mbl.is/Sigurður Bogi

Árið 2020 dóu að meðaltali 43,4 í hverri viku sem var sami fjöldi og dó í viku hverri árin 2017-2019. Að jafnaði dóu flestir í aldursflokknum 85 ára og eldri yfir tímabilið 2017-2020. Þetta kemur fram í tilraunatölfræði Hagstofunnar.

Tíðasti aldur látinna árið 2020 var 88 ára en 87 ára árin 2017-2019.

Á vef Hagstofunnar kemur fram að byggt sé á upplýsingum úr dánartilkynningum sem skráðar eru hjá Þjóðskrá Íslands.

Gögnin gefi góðar vísbendingar um þróun á tíðni andláta yfir árið þótt gera verði ráð fyrir einhverju vanmati í nýjustu tölunum um fjölda látinna árið 2020, þá aðallega vegna dánarvottorða sem berast seint til Þjóðskrár Íslands

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert