„Þetta er ástæðulaus ótti“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir í pistli sínum „Nú er rétti tíminn til að selja“ að rök þeirra sem mótfallnir eru sölu á hluta Íslandsbanka standist ekki skoðun. Pistillinn birtist fyrst í Morgunblaðinu í gær, föstudaginn 30. janúar. 

Áslaug segir tímasetninguna heppilega, öfugt við það sem andstæðingar sölunnar hafa haldið fram. Þvert á móti hafi skap­ast góðar aðstæður til að hefja sölu bank­ans.

„Vaxta­lækk­an­ir leiða til þess að al­menn­ir fjár­fest­ar beina sjón­um sín­um í aukn­um mæli að hluta­bréf­um. Hluta­bréfa­verð hef­ur hækkað veru­lega und­an­farna mánuði. Vel heppnað hluta­fjárút­boð Icelanda­ir sl. haust gef­ur von­ir um góðan ár­ang­ur. Hluta­bréf í Íslands­banka fjölga fjár­fest­inga­kost­um og verða ef­laust eft­ir­sótt meðal al­mennra fjár­festa,“ segir Áslaug. 

Lánasafn Íslandsbanka ekki áhyggjuefni 

Einnig hrekur hún þær staðhæfingar að salan sé óráðleg þar sem stór hluti lána bankans sé í fryst­ingu vegna heimsfaraldurs. Segir Áslaug frystingu lána öðru fremur bundna við ferðaþjónustufyrirtæki. Allar aðgerðir og áætlanir stjórnvalda miði að því að viðspyrna náist í þeirri grein. 

Loks segir Áslaug að andstæðingar sölunnar haldi því fram að nýir eig­end­ur muni ganga að veðum og selja eign­ir fyr­ir­tækja sem eiga í erfiðleik­um.

„Þetta er ástæðulaus ótti. Hags­mun­ir banka og viðskipta­vina þeirra fara sam­an. Bank­ar hafa þannig hag af því að standa með viðskipta­vin­um sín­um í gegn­um erfiða tíma, líkt og ís­lensku bank­arn­ir hafa gert, og aðstoða þá við upp­bygg­ingu þegar storm­inn læg­ir,“ segir Áslaug í pistli sínum. 

Pistilinn hefur Áslaug Arna birt í heild á facebooksíðu sinni. Hann má lesa hér: 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert