Nordic Entertainment Group (NENT Group), stærsta streymisveita á Norðurlöndum, mun sýna landsleiki á vegum Knattspyrnusambands Evrópu í beinni útsendingu í gegnum Viaplay á Íslandi frá og með keppnistímabilinu 2022-2023.
Sex ára samkomulag þess efnis nær til 60 íslenskra landsleikja, en samtals verður meira en 1.200 leikjum streymt á Viaplay. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem UEFA gerir einkaréttarsamning við streymisveitu, að því er segir í tilkynningu.
Þar segir, að þegar íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur leik í Þjóðadeildinni 2022 og í undankeppni EM 2024 geti íslenskir áhorfendur fylgst með öllu sem gerist á streymisveitunni Viaplay. Auk íslenska landsliðsins verði Viaplay heimili allra annarra landsleikja í Evrópu frá 2022-2028. Kaupin á sýningarrétti frá landsleikjum á vegum Knattspyrnusambands Evrópu koma í kjölfarið á kaupunum á sýningarrétti Meistaradeildar Evrópu, Evrópudeildinni og UEFA Conference League.
„Þetta er stór áfangi fyrir okkur og sýnir metnað okkar fyrir alþjóðlegri stækkun Viaplay. Þegar við byrjum að sýna frá íþróttum á Viaplay viljum við verða leiðandi íþróttastöð í viðkomandi landi og sú staðreynd að þetta sé í fyrsta sinn sem Knattspyrnusamband Evrópu gerir einkaréttarsamning við streymisveitu undirstrikar hversu metnaðarfull við erum. Réttinum til að sýna frá íslenska landsliðinu fylgir mikil ábyrgð og munum við leita í 30 ára reynslubanka okkar á Norðurlöndunum til að framleiða og bjóða upp á útsendingar frá þessum leikjum með hætti sem ekki hefur sést áður,“ er haft eftir Anders Jensen, forstjóra og framkvæmdastjóra NENT Group, í tilkynningu.
„Við erum himinlifandi yfir því að hafa náð samkomulagi um frekara langtímasamstarf með NENT, sem mun, á árunum 2022 til 2028, tryggja íslenska landsliðinu og öðrum evrópskum landsliðum heimili á Viaplay. Þar sem NENT hefur víðtæka reynslu í útsendingum frá knattspyrnuleikjum, erum við sannfærð um að stuðningsmenn íslenska landsliðsins muni fá framúrskarandi umfjöllun um leiki Íslands í undankeppni EM í knattspyrnu 2024, HM 2026 og EM 2028 sem og Þjóðadeild Evrópu ásamt úrslitakeppnum Þjóðadeildarinnar 2023, 2025 og 2027 á þeim fjölmörgu áhorfsmöguleikum sem Viaplay býður upp á,“ er haft eftir
Guy-Laurent Epstein, yfirmanni markaðsmála hjá UEFA.