Skemmtistaðir og krár opnuð að nýju

Ölþystir geta kíkt á barinn.
Ölþystir geta kíkt á barinn. Ljósmynd/Aðsend

Heimilt verður að opna skemmtistaði, krár, spilasali og spilakassa að uppfylltum skilyrðum á morgun en breytingar á sóttvarnaráðstöfunum vegna kórónuveirufaraldursins taka gildi á miðnætti. Almennar fjöldatakmarkanir verða áfram 20 manns en með rýmri undantekningum en hingað til. 

Um var­færn­ar til­slak­an­ir á reglu­gerð um tak­mark­an­ir á sam­kom­um vegna far­sótt­ar er að ræða og gilda breyt­ing­arn­ar til 3. mars. Reglur um tveggja metra nálægðarmörk og grímuskyldu verða óbreyttar.

Veitingastaðir þar sem áfengisveitingar eru leyfðar, þar með talin veitingahús, kaffihús, krár og skemmtistaðir, skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 22.00. Sama gildir um spilasali og spilakassa. Veitingar skulu aðeins afgreiddar gestum í sæti. Ekki er heimilt að hleypa inn nýjum gestum eftir kl. 21.00. 

Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir skilaði heil­brigðisráðherra minn­is­blaði með til­lög­um sín­um að breytt­um sótt­varn­aráðstöf­un­um á fimmtudagskvöld og voru þær samþykkt­ar á rík­is­stjórn­ar­fundi á föstudagsmorgun. Fall­ist var á all­ar til­lög­ur sótt­varna­lækn­is.

Fjöldatakmörk gesta í sviðslistum eru aukin úr 100 í 150 manns og trú- og lífsskoðunarfélögum er heimilt að halda athafnir, þar með taldar útfarir, með 150 manns að hámarki.

Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum er 150 manns með hliðsjón af fermetrafjölda og sama gildir um gesti á söfnum. Heilsu- og líkamsræktarstöðvar mega opna búningsaðstöðu að nýju og æfingar í tækjasal eru heimilaðar með skilyrðum. 

Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra segir að þar sem Covid-19-faraldurinn hafi verið í mikilli rénun hér á landi telji hann réttlætanlegt að ráðast í tilslakanir fyrr en áformað var. Hann leggur þó áherslu á að varlega sé farið þar til bólusetning gegn Covid-19 hafi náð meiri útbreiðslu meðal landsmanna.

Undantekningar frá 20 manna fjöldatakmörkunum

Eftirtaldar undantekningar eru frá 20 manna fjöldatakmörkunum en áfram gilda þó ákvæði um tveggja metra nálægðartakmörk og grímuskylda. Fjöldatakmörkin eiga ekki við um börn fædd 2005 eða síðar þar sem þau eru undanþegin ákvæðum um fjöldatakmörk, nálægðarmörk og grímuskyldu.

  • Trú- og lífsskoðunarfélög: Við allar athafnir mega vera 150 fullorðnir einstaklingar. 
  • Verslanir: Heimilt verður að taka við 150 viðskiptavinum að hámarki í hverju rými sem uppfyllir skilyrði um fjölda fermetra. 
  • Söfn: Heimilt er að taka á móti 150 gestum að hámarki í hverju rými sem uppfyllir skilyrði um fjölda fermetra.
  • Sviðslistir: Heimilt er að taka á móti 150 gestum í sæti.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar mega opna búningsaðstöðu að nýju og æfingar í tækjasal verða heimilaðar að því gefnu að ekki séu fleiri en 20 manns í hverju rými og skulu þeir skrá þátttöku sína fyrir fram. Leyfilegur hámarksfjöldi gesta nemur helmingi af þeim fjölda sem kveðið er á um í starfsleyfi. Allur búnaður skal sótthreinsaður eftir notkun og tryggja skal að einstaklingar fari ekki á milli rýma. 
  • Hugarleikir: Reglur sem gilt hafa um íþróttaæfingar og keppnir munu nú gilda á sama hátt um t.d. skák, bridds og bingó og sambærilega hugarleiki.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert